Frí heimsending þegar þú pantar fyrir 25.000 kr. eða meira

Karfan þín

Hvernig fjarlægi ég gellakk án þess að skemma neglurnar?

Flestar skemmdir á nöglum eftir gellakk verða ekki vegna gelsins sjálfs heldur vegna þess hvernig það er fjarlægt. Ef gellakk er rifið eða kroppað af fylgja efstu lög naglarinnar með. Hér er rétta aðferðin.

Það sem þú þarft

Remover og olíur finnur þú undir vökvum og umhirðu.

Skref fyrir skref

  1. Brjóttu yfirborðið. Þjalaðu létt yfir top coat-ið svo glansinn hverfi. Þá kemst removerinn í gegn. Passaðu að þjala ekki niður í nöglina sjálfa.
  2. Bleyttu bómullina. Settu bómull vætta í remover á hverja nögl og vefðu álpappír utan um, eða notaðu klemmur.
  3. Bíddu. Leyfðu þessu að liggja í um 10–15 mínútur. Hlýja flýtir fyrir, svo það hjálpar að hafa hendurnar undir handklæði.
  4. Ýttu varlega. Taktu álpappírinn af einni nögl í einu og ýttu uppleystu gelinu varlega af með naglabandaýtu. Ef það losnar ekki auðveldlega skaltu setja bómullina aftur á í nokkrar mínútur.
  5. Snyrtu og nærðu. Buffaðu leifar létt af, þvoðu hendurnar og berðu naglabandaolíu á neglur og naglabönd.

Algeng mistök

  • Að rífa eða kroppa gelið af. Það fjarlægir lög af náttúrulegu nöglinni og gerir hana þunna og veika.
  • Að skafa fast. Ef gelið er ekki uppleyst þarf það lengri tíma, ekki meiri kraft.
  • Að sleppa olíunni. Remover þurrkar neglur og húð, svo raki skiptir máli á eftir.

En builder gel og BIAB?

Soak-off gerðir BIAB og rubber base má fjarlægja á sama hátt, en það tekur oft lengri tíma. Hart builder gel og polygel leysast hins vegar illa upp og eru yfirleitt þjöluð niður, gjarnan með naglabor. Það krefst æfingar og er best að láta fagaðila sjá um það ef þú ert óviss.

Algengar spurningar

Má nota venjulegan naglalakkshreinsi?

Hreinsir án acetone virkar illa á gellakk. Notaðu remover sem er ætlaður fyrir gellakk.

Hversu oft má setja gellakk á aftur?

Ef gellakkið er fjarlægt rétt má setja nýtt á strax. Ef neglurnar eru orðnar þunnar er gott að gefa þeim nokkra daga og bera á olíu daglega.

Previous post
Next post