Frí heimsending þegar þú pantar fyrir 25.000 kr. eða meira

Karfan þín

Hvað er BIAB? Allt um builder gel í flösku

BIAB stendur fyrir builder in a bottle, eða builder gel í flösku. Þetta er þykkara gel en venjulegt gellakk sem er borið á með pensli beint úr flöskunni. Það styrkir náttúrulegu nöglina, jafnar yfirborðið og gefur fallegan, náttúrulegan glans.

Hver er munurinn á BIAB og gellakki?

Gellakk er fyrst og fremst litur. Það er þunnt og gefur ekki mikinn styrk. BIAB er hins vegar hannað til að byggja upp nöglina. Það myndar sterkara lag sem ver nöglina gegn því að brotna og klofna og hjálpar henni að vaxa.

BIAB er oft notað eitt og sér í glærum eða náttúrulegum tónum, en það má líka setja gellakk ofan á það.

Fyrir hverja hentar BIAB?

  • Þau sem eru með þunnar eða veikar neglur sem brotna auðveldlega.
  • Þau sem vilja safna eigin nöglum án lenginga.
  • Þau sem vilja náttúrulegt og snyrtilegt útlit sem endist.

BIAB hentar síður ef markmiðið er að lengja neglurnar mikið. Þá eru builder gel eða polygel með formum eða tips betri kostur.

Hvernig er BIAB borið á?

  1. Undirbúningur: Naglaböndum er ýtt aftur, yfirborð naglarinnar mattað létt og nöglin hreinsuð og þurrkuð. Hér skipta dehydrator og primer máli fyrir festu.
  2. Grunnlag: Þunnt lag af BIAB eða base er borið á og hert í lampa.
  3. Uppbygging: Þykkara lag er sett á miðja nöglina til að mynda boga (apex) sem gefur styrk. Hægt er að snúa hendinni augnablik svo gelið jafni sig áður en það er hert.
  4. Frágangur: Ef gelið skilur eftir klístrað lag er það þurrkað af með cleaner. Ef óskað er eftir lit er gellakk og top coat sett ofan á.

Herðingartími fer eftir geli og lampa, svo fylgdu alltaf leiðbeiningum framleiðandans. Til að herða BIAB þarf UV/LED-naglalampa.

Hversu lengi endist BIAB?

Algengt er að BIAB endist í 3–4 vikur. Þá vex nöglin fram og gott er að fara í lagfæringu (infill), þar sem gamla gelið er þjalað niður og nýtt lag sett á. Þannig þarf ekki að fjarlægja allt í hvert skipti.

Hvernig er BIAB fjarlægt?

Sumar gerðir BIAB má leysa upp með remover (soak-off) en aðrar þarf að þjala niður. Mikilvægast er að rífa gelið aldrei af, því þá fylgja efstu lög naglarinnar með. Nánar um það í greininni Hvernig fjarlægi ég gellakk?

Algengar spurningar

Skemmir BIAB neglurnar?

Ekki ef það er borið rétt á og fjarlægt varlega. Skemmdir verða oftast þegar gel er rifið af eða nöglin þjöluð of mikið við undirbúning.

Má setja gellakk ofan á BIAB?

Já. Mörg kjósa BIAB sem styrkjandi grunn og gellakk í lit ofan á.

Get ég lært að gera BIAB sjálf?

Já. Naglaskóli AndaNeglur býður upp á BIAB-námskeið þar sem farið er yfir alla tæknina skref fyrir skref.

Skoðaðu úrvalið af BIAB og builder geli í flösku hjá AndaNeglur.

Next post